Formaður: Guðmundur Guðlaugsson
Varaformaður: Andri Þór Gestsson
Kórstjóri: Örlygur Atli Guðmundsson

Um Karlakór Kjalnesinga

Karlakór Kjalnesinga var stofnaður árið 1991 af nokkrum félögum af Kjalarnesi og Kjós. Páll Helgason stjórnaði kórnum fyrstu 20 árin en hann hefur haft mikil áhrif á tónlistar og menningarlíf í Kjósarsýslu. Haustið 2011 tók Örlygur Atli Guðmundsson við kórstjórninni. Kórinn hefur á að skipa 45-50 söngmönnum og er æfingaaðstaða kórsins að Fólkvangi á Kjalarnesi.

Formaður kórsins veturinn 2011-2012 er Guðmundur Guðlaugsson 1. bassi.

Meira um Karlakór Kjalnesinga

Kórinn hefur staðið fyrir uppákomum og farið í ferðalög svo sem til Kanada, Ítalíu, Parísar, Berlínar og nú síðast til Pétursborgar og Tallinn. Aldrei hefur farið á milli mála að kórinn var í heimsókn.

Hér má finna félagslög Karlakórs Kjalnesinga